Terms of service
Samþykki notkunarskilmála H.H.Grimm
Um notkun vefsíðu og vefverslunar H.H.Grimm ehf. (kennitala: 690422-0340, vsk nr. 144758). Þegar þú notar vefsíðu eða vefverslun (hér eftir H.H.Grimm) þá gilda þessir skilmálar. Skilmálarnir eru bæði mikilvægir fyrir okkur og þig, vegna þess að þeir tryggja hagsmuni beggja aðila og veita hagnýtar upplýsingar. Með því að nota vefsíðu og vefverslun H.H.Grimm samþykkir og viðurkennir neytandi að hann hafi kynnt sér, skilið og samþykkt, án fyrirvara, skilmála þessa, eins og þeir eru á hverjum tíma.
H.H.Grimm áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum án fyrirvara.
1.Gr. Nákvæmni upplýsinga
Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um innsláttarvillur og minniháttar uppfærslutafir. Eftir bestu getu er reynt að hafa réttar upplýsingar og vörumyndir í vefverslun. Tilvik koma þar sem minniháttar forms eða litamunur sé á vörunum.
Lýsing á orkusteinum og virkni þeirra er einungis byggt á upplýsingum úr bókum og vefsíðum og er ekki gengið að því að sögð virkni þeirra standist í öllum tilvikum og er engin ábyrgð tekin á því.
2.Gr. Greiðsluleiðir
Hægt er að greiða í gegnum netverslun H.H.Grimm með greiðslukorti í gegnum Netgríró, Rapyd eða Aur.
Sérpantanir og aðrar greiðslur samkvæmt samkomulagi verða gerðar með innheimtukröfu á bankareikning viðskiptavinar.
H.H.Grimm er fullur eigandi vörunnar þar til andvirði hennar er að fullu greiddur nema ef samið hefur verið um annað.
- Gr. Heimsending
Í gegnum netverslun H.H.Grimm er boðið upp á heimsendingu með Póstinum eða Dropp
Pósturinn Þegar valið er að fá vöruna heimsenda eða á næsta pósthús/póstbox er sendingatími almennt 1-3 dagar eftir póstlagninu. Utan höfuðborgarsvæðis er heimsending einungis í boði á þeim svæðum sem pósturinn býður upp á. Sjá nánar hér Pósturinn.is.
Dropp Þegar valið er að fá vöruna heimsenda eða á næsta afhendingarstað er sendingar tími 1-3 dagar eftir póstlagningu. Utan höfuðborgarsvæðis er heimsending ekki í boði. Sjá nánar á hér Dropp.is
H.H.Grimm Þegar valið er að fá þyngri vörur heimsendar keyrir H.H.Grimm vöruna heim að dyrum. Sendingatími er almennt um 2-5 dagar. Ath aðeins er þetta heimsending en ekki boðið upp á uppsetningu á vöru.
Ef viðskiptavinur kýs að sækja vöruna er það einungis eftir samkomulagi beggja aðila. H.H.Grimm býður einnig upp á heimsendingu eftir samkomulagi á stærri pöntunum.
Heimsending er einungis í boði innanlands.
H.H.Grimm býður upp á fría heimsendingu á vörum ef verslað er fyrir 10.000 kr með Póstinum, fyrir 20.000 kr með Dropp eða 10.000 kr með H.H.Grimm eða meira annars er greitt samkvæmt gjaldi sem bætist við í greiðsluferli.
Nánari upplýsingar um heimsendingu má finna undir Sendingarmáti.
4.Gr. Vöruskil
Það er 30 daga skilafrestur á vöru frá afhendingu ef neðangreind atriði eru uppfyllt nema um annað hafi verið samið. Vöru fæst einungis skilað gegn framvísun reiknings. Sendingakostnaður við að skila vöruni greiðist af neytanda.
Sérpantaðri vöru fæst ekki skilað né skipt.
4.A Varan þarf að vera auðsjáanlega ónotuð og óskemmd.
4.B Ef varan er gölluð og ekki mögulegt að gera við hana. H.H.Grimm fær rétt á að lagfæra vöru áður en réttur til vöruskila myndast.
5.Gr. Vafrakökur (E.Cookies)
Með því að nota vefverslun H.H.Grimm samþykkir neytandi að H.H.Grimm safni upplýsingum sjálkrafa með vafrakökum.
6.Gr. Lög og varnarþing
Skilmála þessa, tilboð, samninga og aðra viðskipta milli viðskiptavina og H.H.Grimm ber að túlka í sæmræmi við íslensk lög.
Komi til málaferla eða lögfræði innheimtu vegna viðskipta félagsins og viðskiptavinar þess skal reka slík mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Persónuverndarstefna
Almennt
H.H.Grimm ehf. hefur einsett sér að tryggja trúnað, áreiðanleika og
tiltækilega persónuupplýsinga í hvítvetna.
Ábyrgðaraðili við vinnslu persónuupplýsinga er sá aðili sem ákveður tilgang og aðferðir við vinnsluna.
H.H.Grimm ehf. er ábyrgðaraðili á vinnslu persónuuplýsinga hjá fyrirtækinu.
Frá hverjum safnar H.H.Grimm ehf. persónuupplýsingum
H.H.Grimm ehf safnar oftast persónuupplýsingum frá þeim aðila
sem persónuupplýsingarnar varða. Í ákveðnum tilvikum safnar H.H.Grimm ehf. persónuupplýsingum
frá þriðja aðila og reynir fyrirtækið að upplýsa viðkomandi aðila um það.
Hvaða upplýsingar vinnur H.H.Grimm ehf. og
hvers vegna?
Skráning á áskriftarklúbb H.H.Grimm ehf.
-Netfang
Heimild til vinnslu persónuuplýsinga byggir í þessu tilviki á samþykki, sbr. 1. tl. 1. mgr. 9. gr. persónuverndarlaga.
Netverslun
Á heimasíðu H.H.Grimm ehf. (hhgrimm.is) geta einstaklingar verslað vörur sem
fyrirtækið hefur til sölu að hverju sinni. Til þess að geta afgreitt vörunar til viðskiptavina
er mikilvægt að vinna með eftirfarandi upplýsingar:
-Tengiliðaupplýsingar
(nafn, netfang, heimilisfang og símanúmer)
-Greiðslumáti
-Upplýsingar um vörukaup
-Afhendingarmáti
Heimild til vinnslu persónuupplýsinga byggir á samningi, sbr. 2. tl. 1. mgr. 9. gr persónuverndarlaga.
Reikningsviðskipti
Þegar H.H.Grimm ehf. á í reikningsviðskiptum við viðskiptavini sem geta bæði
verið einstaklingar og fyrirtæki. Þegar H.H.Grimm ehf. á í reikningsviðskiptum við
einstaklinga í þeim tilgangi að útbúa reikning vegna vörukaupa er fyrirtækinu nauðsynlegt
að vinna með eftirfarandi upplýsingar:
-Tengiliðaupplýsingar
(nafn, netfang, heimilisfang og símanúmer)
-Greiðslumáti
-Upplýsingar um vörukaup
Heimild til vinnslu persónuupplýsinga vegna framangreinds byggir á samningi, sbr. 2. tl. 1. mgr. 9. gr. persónuverndarlaga.
Þegar H.H.Grimm ehf. á í reikningsviðskiptum við fyrirtæki eru upplýsingar um
tengilið skráðar í þeim tilgangi að sá sem stofnar til reikningsviðskiptanna og
á í reikningsviðskiptum fyrir hönd viðskiptavinar hafi til þess heimild. H.H.Grimm
er í þessum tilvikum nauðsynlegt að vinna með eftirfarandi upplýsingar:
Tengiliðsupplýsingar
(svo sem nafn og netfang)
Heimild til vinnslu persónuupplýsinga vegna framangreind byggir á lögmætum hagsmunum, sbr. 6. tl. 1. mgr. 9. gr. persónuverndarlaga.
Tölvupóstur
Einstaklingar geta alla jafna sent okkur tölvupóst á netfangið : hannesgrimm@hhgrimm.is
ef þeir hafa spurningar í tengslum við starfsemi fyrirtækisins en tilgangurinn er að auðvelda og halda
utan um samskiptin. Vegna utanumhalds um tölvupóst er H.H.Grimm ehf. nauðsynlegt að vinna
með eftirfarandi upplýsingar:
-Tengiliðaupplýsingar
(svo sem nafn og netfang)
Samskipti
Heimild til vinnslu persónuupplýsinga byggir á lögmætum hagsmunum, sbr. 6. tl. 1. mgr. 9. gr. peersónuverndarlaga.
Hafa samband í gegnum heimasíðu
Einstaklingar geta sent inn fyrirspurnir í gegnum vefsíðu H.H.Grimm ehf. (hhgrimm.is)
í þeim tilvikum er H.H.Grimm ehf. nauðsynlegt að vinna með persónuupplýsingum í þeim tilgangi að taka
á móti fyrirspurn og vinna úr þeim. Í þeim tilgangi svo H.H.Grimm ehf. getur unnið
og svarað fyrirspurn einstaklinga þurfa þeir að skrá inn fyrirspurn, nafn,
símanúmer og netfang sitt.
Heimild til vinnslu persónuupplýsinga byggir alla jafna á samþykki, sbr. 1. tl. 1. mgr. 9. gr. persónuverndarlaga.
Miðlun persónuupplýsinga til þriðja aðila
H.H.Grimm ehf. notast við rafrænar lausnir frá þriðja aðila sem auðveldar
fyrirtækinu að halda utan um og miðla upplýsingum. H.H.Grimm ehf. gerir
alltaf vinnslusamning við viðkomandi í samræmi við persónuverndarlög. Slíkur samningur kveður
meðal annars á um skyldu hans að veita fyllsta trúnaðar, tryggja öryggi og fara eingöngu
með persónuupplýsingar í samræmi við fyrirmæli fyrirtækis.
H.H.Grimm ehf. kann í ákveðnum tilvikum að deila persónuverndarupplýsingum með
þriðja aðila sem ekki er bundinn fyrirmælum fyrirtækisins um meðferð þeirra.
Rétt er þó að taka fram að framangreindum aðilum er ávallt skylt að haga meðferð persónuupplýsinga
í samræmi við persónuverndarlög.
Varðveislutími persónuupplýsinga
H.H.Grimm ehf. geymir persónuupplýsingar aðeins í þann tíma sem nauðsynlegt er fyrir fyrirtækið.
Þegar ekki er þörf fyrir H.H.Grimm ehf. að hafa persónuupplýsingar lengur eyðir fyrirtækið þeim
með öruggum hætti.
Þinn réttur
Þú nýtur ákveðinna réttinda samkvæmt persónuverndarlögum. Ef þú vilt nýta þessi
réttindi máttu hafa samband við okkur í gegnum netfang: hannesgrimm@hhgrimm.is
Við höfum tvo mánuði til að svara erindi þínu en getum framlengt frestinn um þrjá mánuði ef beiðnin
er sérstaklega umfangsmikil. Rétt er að taka fram að réttindi þín eru ekki fortaklaus og kunna
að vera háð ákveðnum skilyrðum. Hér er að finna yfirlit yfir helstu réttindi þín.
Réttur til aðgangs
Þú átt rétt á að óska eftir aðgangi að þínum gögnum og fá afrit af þínum persónuupplýsingum.
Réttur til leiðréttingar
Þú átt rétt á að fá að leiðrétta upplýsingar um þig sem eru rangar og ónákvæmar.
Réttur til eyðingar
Í ákveðnum tillfellum getur þú átt rétt á að þínum persónuupplýsingum sé eytt. Þetta á einkum við í þeim
tilfellum þar sem upplýsingar eru ekki lengur nauðsynlegar, þú hefur andmælt vinnslunni, vinnslan reynist
ólögmæt, eða ef vinnslan byggir á samþykki sem þú hefur afturkallað.
Réttur til að andmæla vinnslu
Byggi vinnsla á persónuupplýsingum á lögmætum hagsmunum, og þú telur að hún brjóti gegn
grundvallarréttindum þínum, þá getur þú andmælt vinnslunni. Við hættum þá vinnslunni
nema við sýnum fram á ríkari hagsmuni af því að halda henni áfram.
Réttur til takmörkunar á vinnslu
Í eftirfarandi tilfellum átt þú rétt á að við stöðvum vinnslu persónuupplýsinga. Ef þú véfengir að persónuupplýinguar sér réttar (þar til við getum staðfest að þær séu réttar), Vinnslan er ólögmæt, en þú villt ekki að persónuupplýsingum sé eytt, Við þurfum ekki lengur á upplýsingunum að halda en þú þarfnast þeirra til að hafa uppi, stofna eða verja réttarkröfu, Þú hefur andmælt vinnslunni og við höfum ekki bent á ríkari hagsmuni af því að halda henni áfram.
Réttur til að afturkalla samþykki
Í þeim tilfellum þar sem við byggjum vinnslu á samþykki þínu er þér ávallt heimilt að afturkalla slíkt
samþykki. Afturköllun á samþykki þýðir þó ekki að vinnslan sem fór fram áður en samþykki var
afturkallað sé ólögmæt.
Réttur til að leggja fram kvörtun um persónuvernd
Teljir þú að ekki sé farið með persónuupplýsingar þínar í samræmi við persónuverndarlög átt þú ávallt rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd (www.personuvernd.is)
Endurskoðun
Persónuverndarstefna þessi getur frá einum tíma til annars tekið breytingum í samræmi við breytingar sem verða á viðeigandi lögum og reglugerðum eða ef breytingar verða á því hvernig H.H.Grimm ehf. vinnur með persónuupplýsingar.